Bloggfærslur mánaðarins, júní 2007
6.6.2007 | 15:24
Dvergarnir sjö náðu sér ekki á flug
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.6.2007 | 03:12
Ólöglegir innflytjendur og mögulegar verðhækkanir á burrítós
Kappræður forsetaframbjóðenda repúblikana á CNN á þriðjudagskvöld munu vafalítið beinast að innflytjendamálum - á sama hátt og Íraksmálið varð eina áhugaverða umræðuefni demókratanna á sunnudag. Frambjóðendurnir munu sér í lagi takast á um lagafrumvarp sem John McCain er einn flutningsmanna að, George W. Bush styður og aðrir frambjóðendur repúblikana eru á andvígir - aðallega vegna þess að frumvarpið veitir að þeirra mati ólöglegum innflytjendum almenna sakauppgjöf - og er stórhættulegt öryggi Bandaríkjanna, bandarísks almennings (og ekki síst bandarískri menningu). Frambjóðendurnir vilja þó ekki heldur marsera þessum tólf milljónum upp í rútu suður á bóginn - enda hefði það óhugsandi áhrif á bandaríska hagkerfið, ekki síst hér í Kaliforníu.
Mitt Romney hefur nýtt innflytjendamálið til þess að sækja hart að McCain og styrkja stöðu sína meðal íhaldsmanna - sem sjá hann sem hugsanlega skásta kostinn (sem nú stendur til boða), þótt hann hafi áður verið fylgjandi fóstureyðingum, kunni ekki á byssur, hafi skipt um skoðanir á öllum hugsanlegum málum og sé Mormóni.
Bandarískir kjósendur virðast þó vera jafnóvissir um skoðanir sínar á innflytjendamálum og flestir frambjóðendurnir. Samkvæmt nýlegri könnum styðja yfir 60% repúblikana frumvarp McCains (og Kennedys) en yfir 50% kjósenda segja að stuðningur frambjóðenda við frumvarpið dragi úr líkum á að þeir veiti frambjóðendunum stuðning. Fæstir vilja líka borga garðyrkjumönnunum, byggingaverkamönnunum og fóstrunum meira - hvað þá að borga tveimur dollurum meira fyrir burrito.
Á meðan Guilian, McCain og Romney ráðast gegn hver öðrum á CNN mun Fred Thompson sitja hjá - og fá tækifæri til þess að ræða frammistöðu (hugsanlegra) andstæðinga sinna á Fox News, helgasta vígi bandarískra íhaldsmanna, strax að loknum kappræðunum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.6.2007 | 05:27
Demókratar takast á um Írak
Írak virðist vera eina málið sem fær forsetaframbjóðendur demókrata til þess að ræða af raunverulegum áhuga og innlifun - a.m.k ef dæma má af sjónvarpskappræðum átt frambjóðenda á CNN á sunnudagskvöld.
John Edwards skammaði Hillary Clinton og Barak Obama fyrir að hafa ekki beitt sér gegn áframhaldandi fjárveitingum til stríðsins í Írak í sjónvarpskappræðum í New Hampshire á sunnudag. Edwards sagði að þrátt fyrir að öldungadeildardeildarþingmennirnir hefðu greitt atkvæði gegn aukafjárveitingum til stríðsrekstursins þá hefðu þeir ekki reynt að leiða þingflokkinn í sömu hátt - og væru því ekki raunverulegir leiðtogar. En það væri hann svo sannarlega sjálfur. Edwards nýtti kappræðurnar vel til þess að reyna að sýna fram á að hann væri sterkur frambjóðandi sem gæti vel staðið jafnfætis við Clinton og Obama, sem enn leiða flestar skoðanakannanir, þó að hann sé þeim enn nokkuð að baki í skoðanakönnunum.
Hillary lagði áherslu á að munurinn á frambjóðendum demókrata varðandi stríðið í Írak væri ekki mikill - og að stríðið væri fyrst og fremst vandamál George W. Bush. Hún virðist reyna eftir fremstu getu að beina athyglinni frá því að hún samþykkti heimild til stríðsrekstursins gegn Írak.
Joe Biden, formaður utanríkismálanefndar öldungadeildarinnar, var eini frambjóðandinn fyrir utan Hillary Clinton, Barak Obama og John Edwards, sem náði að vekja sérstaka athygli á sér. Biden náði að útskýra vel af hverju hann kaus með aukafjárveitingunni til stríðsins í Írak -sem er viðkvæmt mál fyrir demókrata- , virtist hafa mjög góða þekkingu á málefninu og leit forsetalega út. Það er því hugsanlegt að Biden nái að brjótast upp fyrir 5%, sem gæti verið hjálpað honum að tryggja sér aukinn fjárstuðning fyrir kosningabaráttuna, þó að kappræður leiði seint til grundvallarbreytinga á stöðu frambjóðenda - nema að þeir fremji pólitískt sjálfsmorð, sem engin gerði að þessu sinni.
Bloggar | Breytt 5.6.2007 kl. 02:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.6.2007 | 18:04
Mitt Romney með mikinn stuðning í mikilvægum fylkjum
Þrátt fyrir að Guiliani sé enn með forystu þá hefur Mitt Romney aukið verulega við fylgi sitt í mikilvægum fylkjum á borð við Iowa og New Hampshire, sem verða fyrstu fylkin til þess að kjósa í forkosningunum. Þar hefur hann jafnvel mælst með mestan stuðning allra frambjóðenda. Fred Thompson mun vafalítið hrista upp í hópnum, þar sem hann hefur oft mælst með yfir 10% stuðning án þess að vera í formlega í framboði og yfir 60% repúblikana eru ósáttir við þá frambjóðendur sem þeim standa til boða.
Á hinum endanum munu demókratar takast á sjónvarpskappræðum á sunnudagskvöld í New Hampshire. Þar gefst minni spámönnum tækifæri til þess að vekja athygli á sér, Obama að endurvekja kraftinn í baráttunni og Hillary að styrkja forskotið. Verst að fæstir Bandaríkjamenn hafa áhuga á kappræðunum, ennþá færri munu horfa á þær og þær munu hafa áhrif á enn færri - nema að einhver klúðri sínum málum algjörlega. Svo eru það repúblikanarnir á þriðjudag.
Giuliani og Clinton enn með forustu; Thompson gæti aukið fylgið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.6.2007 | 01:53
Obama og Romney vilja fjölmennari her
Írak er grundvallarmál í kosningabaráttunni - og þróun átakanna þar á næstu mánuðum mun hafa mikil áhrif á úrslit kosninganna í nóvember á næsta ári. Það er því ekki að ósekju sem fá önnur utanríkismál virðist geta komist undan skuggans sem Íraksstríðið varpar á kosningabaráttuna.
Tveir nýgræðingar í utanríkismálum, Barak Obama og Mitt Romney, fengu þó tækifæri til þess að útlista drög að utanríkisstefnum sínum í sumarhefti Foreign Affairs (www.foreignaffairs.org) - og fleiri munu síðan fylgja í kjölfarið.
Frambjóðendurnir leggja báðir höfuðáherslu á að útlista stefnur sínar varðandi Írak. Obama vill kalla alla hermenn í bardaghlutverkum heim fyrir lok mars 2008 en Romney vill leyfa stefnu núverndi bandaríkjaforseta að njóta vafans. Báðir hafa lýst þessum afstöðum sínum áður.
Það er þó ekki aðeins varðandi Írak sem frambjóðendurnir virðast ósammála. Obama leggur höfuðáherslu á hættuna af gróðurhúsaáhrifunum og að Bandaríkin beiti sér fyrir friði fyrir botni Miðjarðarhafs - og tryggja þurfi öryggi Ísraels í því ferli Obama gleymdi reyndar að tilgreina Ísrael sem náið náið bandalagsríki Bandaríkjanna í nýlegum sjónvarpskappræðum - sem kom sér mjög illa þar sem gyðingar eru mjög áhrifamiklir í lykilríkjum fyrir demókrata.
Romeny leggur hins vegar höfuðáherslu á stríðið gegn alþjóðlegum hryðjuverkum - þ.e. öfgafullu íslam - og að Bandaríkin verði að gera allt til þess að verða óháð erlendum olíuframleiðendum.
Frambjóðendurnir eru þó ekki ósammála um allt og vilja báðir að Bandaríkin viðhaldi leiðtogahlutverki sínu á alþjóðavettvangi. Þeir vilja báðir styrkja herinn, berjast með öllum tiltækum ráðum gegn alþjóðlegum hryðjuverkum og stöðva útbreiðslu kjarnorkuvopna - þar með íhuga beitingu hervalds gegn Íran. Obama og Romney gagnrýna báðir nýtt mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna fyrir að samþykkja níu ályktanir gegn Ísrael en minnast ekki einu orði á ástandið í Súdan. Þeir vilja þó báðir að Bandaríkin takist á við alþjóðlegar ógnir í samstarfi við önnur ríki - þó að Romney sjái slíkt samstarf fyrir sér á þrengri og herskárri hátt en Obama.
Grein Obama er herskárri en búast hefði mátt við af fyrri ræðum frambjóðandans - þótt hann minnist líka á "mýkri utanríkismál" á borð við útbreiðslu AIDS, loftslagsmál og fátækt. Með harðari áherslum vill Obama sýna fram á að hann sé hæfur til þess að verða forseti ríkis sem telur sig í stríði á fjölda vígvalla - að hann geti tekið erfiðar ákvarðanir þrátt fyrir reynsluleysi sitt á alþjóðavettvangi. Auk þess stendur hann - líkt og aðrir frambjóðendur Demókrata - frammi fyrir því erfiða verkefni að breyta þeirri skoðun bandarískra kjósenda um að demókratar geti ekki tryggt öryggi Bandaríkjanna. Því eins mikið og bandarískir kjósendur eru andsnúnir stríðinu í Írak þá hafa minningar um árásirnar árið 2001 ennþá mikil áhrif á afstöðu þeirra til utanríkismála.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.6.2007 | 03:03
Gæti frú Thompson orðið til vandræða?
Bloggar | Breytt 3.6.2007 kl. 17:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)